Klefinn - Geymsluhúsnæði á Flateyri
Share
Við erum með nokkuð stórt lagerhúsnæði í upphituðum rými á Flateyri sem áður var frystiklefi. Þar getum við boðið viðskiptavinum að deila með okkur geymsluhúsnæði gegn vægu gjaldi. Aðgengi er að geymslunni á dagvinnutíma eða eftir nánara samkomulagi. Best er að heyra beint í okkur í síma 4566200 til að bóka pláss eða til að fá frekari upplýsingar. Við bjóðum einnig upp á þá þjónustu að sækja og senda bretti en það er allt gert með nánari samtali við hvern og einn viðskiptavin.
4500 kr pr bretti pr mán
6500 kr pr bretti sem er umfram 400 kg.
Afgreiðslugjald Inn 2500 / út 2500 kr
Sendiferð með vörur. 12.500 kr pr klst.
Allar vörur / munir þurfa að vera á brettum og brettið þarf að vera lokað með rappplasti og við getum aðstoðað við þá vinnu. Hámarkshæð á bretti er 2,5m.
20% afsláttur er fyrir langtímaleigu sem er lengri en 4 mán.
Innheimt er fyrir hvern byrjaðan mánuð sem vara er í húsi.
Vsk 24% bætist við gjaldskrá